Withsara Wellness Retreat
Konur kjarna sig, fylla á orkutankinn og setja sjálfa sig í fyrsta sætið
Sólarhringsferð á Hótel Geysi 11-12 maí
Í fyrsta sinn heldur Withsara Wellness Retreat - á Íslandi fyrir íslenskar konur. Við ætlum að taka yfir Hótel Geysi í 24 klst. þar sem við munum njóta saman og skapa hámarks upplifun í dásamlegu umhverfi og nálægð við náttúruna, næra bæði líkama og sál. Við æfum saman, njótum félagsskapar og nærveru, söfnum kröftum, fáum innblástur og hvatningu, borðum góðan og nærandi mat og eigum eftirminnilegar stundir.
Ógleymanleg upplifun frá upphafi til enda
Allt um Withsara Wellness Retreat
Innifalið
Withsara Wellness Retreat verður ógleymanleg upplifun frá upphafi til enda. Eftirfarandi er innifalið í heildarverðinu:
Hressing við komuna
Þriggja rétta kvöldmáltíð á Geysi
Morgunverða hlaðborð
Gisting í eina nótt á Hótel Geysi
Þrír Withsara tímar
30 mín Workshop með Söru
Mjög veglegur Goodiebag
Fyrir hvern er ferðin
Withsara Wellness Retreat er fyrir allar konur sem vilja núllstilla sig, dekra við sig í einn sólahring og næra sig með hreyfingu, góðum mat og góðum félagsskap. Withsara æfingarnar eru fyrir öllu getustig. Upplifunin er kjörin fyrir vinkonur og vinkonuhópa og ekki síður fyrir stakar konur sem vilja kúppla sig úr daglegri rútínu í einn sólahring. Boðið verður bæði uppá að deila eða vera einar í herbergi.
Dagskrá
11 maí
12:30 -13:00 Mæting á Hótel Geysi
13:30 Ganga og veitingar í skóginum
15:00 Check-in á Hótel Geysi
16:30 Withsara æfing
18:00 Frjáls tími
19:00 Kvöldmatur
21:00 Hugleiðsla og mjúkt yoga flæði með Söru
12. maí
7:30 Morgunskokk með Elísabetu Gunnars (fyrir áhugasama)
8:00-9:00 Morgunverða hlaðborð
9:00 Workshop með Söru
9:30 Withsara æfing
11:00 Hressing og check-out
Bóka
Boðið er upp á þrjár tegundir af herbergjum og að deila herbergi með vinkonu eða vera ein. Ath. að allt sem nefnt var hér að ofan er innifalið í neðangreindu verði.
Ef þú ert með einhverjar spurningar þá er hægt að hafa samband við retreats@withsara.com og við svörum þeir um hæl. Einnig hægt að hafa samband vegna hópapantana - 10 eða fleiri.
Ath. takmörkuð pláss er í boði.
Standard herbergi
Standard tvær saman: 49.990 kr. per konu
(bókað og greitt fyrir báðar samtals 99.980 kr.)
Standard ein í herbergi: 72.990 kr. per konu
Deluxe herbergi
Deluxe tvær saman: 59.990 kr. kr per konu (bókað og greitt fyrir báðar samtals 119.980 kr.)
Deluxe ein í herbergi: 82.990 kr per konu
Svíta
Svíta tvær saman: 69.990 kr per konu
(bókað og greitt fyrir báðar samtals 139.980 kr.)
Svíta ein í herbergi: 92.990 kr per konu